Engin tenging

Bill Hicks: "There's no connection between having a gun and shooting someone with it, and not having a gun and not shooting someone. And you'd be a fool and a Communist to make one."
mbl.is Þriðja mesta skotvopnaeignin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staða eftir fylkjum

Það var algerlega viðbúið að McCain fengi þetta "bump" eftir ráðstefnu Repúblika. Þetta á eftir að rétta sig við aftur. Best finnst mér að skoða stöðuna eftir fylkjum. Það sýnir best hvernig kjörmenn skiptast á milli frambjóðenda og þar er Obama með ágætis forskot. Ég mæli með því að fólk skoði frekar síðuna www.pollster.com. Þar er góð umfjöllun um stöðuna í öllum ríkjum og þá þróun sem hefur verið á könnununum. Mæli svo líka með þessari klippu frá meistar Jon Stewart í Daily show þar sem hann tekur fyrir hræsni Repúblika.

http://www.thedailyshow.com/video/index.jhtml?videoId=184086&title=sarah-palin-gender-card


mbl.is McCain nær forskoti á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara venjulegur dagur í firðinum góða

Þegar svona gerist þá stofna heimamenn til svokallaðs "dance-off" um hver fái að hirða hann. Pabbi hefur löngum verið sleipur á dansgólfinu þannig ég vona að það bíði mín ísbjörn þegar ég kem heim næst.
mbl.is Ísbjörn við Þverárfjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mættur aftur

Jæja...þetta blogg var nú alveg steindautt vegna leti minnar og áhugaleysis. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að endurvekja það þar sem ég er of skemmtilegur og gáfaður til þess að fólk fari á mis við það. Sjáum hvað úr verður....

Frábærir þættir og frábærar fréttir!

Jæja...ég get ekki orða bundist eftir að lesa vitleysis bloggfærslurnar sem koma með þessari frétt.

Fólk kvartar gríðarlega yfir því að þetta sé dregið á langinn. Þetta átti helst að vera bara ein sería og þar fram eftir götunum. "Við vorum dregin á asnaeyrunum!" Bíddu...hefur fólk aldrei horft eina einustu sjónvarpsseríu sem frá Bandaríkjunum kemur? Auðvitað eru framleiddir margir þættir af því sem er vinsælt. Til þess er leikurinn gerður! Gefst allt þetta fólk upp á öllum sjónvarpsþáttum sem eru lengri en ein sería eða hvað?

Ég er ekki að fara að verja það að þessir þættir séu að einhverju leyti dregnir á langinn. Það eru þeir vissulega. Hinsvegar er sagan svo margbrotin og frábær í Lost að hún á hvern einasta þátt skilið. Ég hef horft á hvern einasta þátt af Lost og ég mun svo sannarlega horfa á hana til enda. Þessi þættir eru hlaðnir lofi vegna þess að þeir eru frábærlega vel skrifaðir og vel leiknir. Mér finnst persónulega æðislegt að fá svörin í smá skömmtum í gegnum 6 seríur. Fer svo stoltur út í búð og versla allan pakkan á DVD þegar sýningum lýkur. Sá pakki mun svo fá sérstakan heiðursess upp í hillu og ég mun hlægja að þeim vesalingum sem gáfust upp á þessum þáttum vegna þess að "æi...ég er ekki að fá milljón svör við öllum sköpuðum hlutum sem eiga sér stað í hverjum einasta þætti" 

 Svo finnst mér frábærar fréttir felast í því að í fyrsta lagi: "Lindelof og Cuse segja að þeir hafi haft að leiðarljósi í þó nokkurn tíma„vegvísi fyrir alla þættina þar sem öll meiriháttar goðsagnanleg þáttaskil koma fram og endirinn liggur fyrir.“ Þetta þýðir hvað....jú að þættirnir eru ekki búnir til "as they go" sem sést greinilega á þáttum eins og t.d. Prison Break.

Og í öðru lagi: 16 þættir sýndir frá janúar á hverju ári án pásu sem þýðir að þeir hafa meiri tíma til að búa til góða þætti. 

 Á endanum verð ég svo að minnast á hlut sem heitir persónusköpun. Já ég vil kynnast hverjum einasta karakter eins vel og mögulegt er svo að ég bindist þeim einhverjum böndum og láti mig það varða hvað verður um þá. Þeir sem vilja fá öll svörin á færibandi yfir nokkra þætti vilja bara fá að vita hvað er "um að vera" í staðinn fyrir að láta sig söguna alla varða. Þessi persónusköpun, sem er mögnuð í Lost, er ástæðan fyrir því að þessir þættir eru svona vinsælir.

 

Ég lýsi því hér með yfir að LOST eru bestu drama sjónvarpsþættir sem ég hef nokkurn tímann séð. Þeir sem átta sig ekki á því eru sennilega þeir sem byrja öfugt á spennubækum til þess eins að fá að vita "hver gerði það". Þvílík vitleysa og skammsýni..... 


mbl.is Týnd í þrjú ár til viðbótar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Pétur Fannberg Víglundsson

Höfundur

Pétur Fannberg Víglundsson
Pétur Fannberg Víglundsson
Skagfirðingur með meiru og stoltur af því! Fastur í Breiðholtinu í augnablikinu og finnst það bara merkilega ágætt.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • david-hasselhoff story

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband